Um félagið

Eik fasteignafélag var stofnað árið 2002. Fyrstu eignir þess voru húsnæði Húsasmiðjunnar en svo stækkaði fyrirtækið hratt, einkum í miðbæ Reykjavíkur, og er nú eitt sterkasta fasteignafélagið þar. Eik fasteignafélag hefur einnig keypt mikið af eignum á svæðum 105 og 108 í Reykjavík. Þau svæði eru öflug verslunar- og skrifstofusvæði.

Rekstur Eikar fasteignafélags hefur gengið afar vel alla tíð frá stofnun félagsins og hefur það staðið sig afar vel í gegnum þær efnahagsþrengingar sem hafa gengið yfir. Félagið leggur mikið uppúr því að birta allar upplýsingar á verðbréfaþingi og má sjá þær tilkynningar hér á vefnum undir liðnum Fjárfestingatengsl.

Leigutakar Eikar fasteignafélags eru margbreytilegir og stunda ýmis konar rekstur. Hjá okkur eru leigutakar í 15 – 20 m2 skrifstofum og allt uppí rúmlega 2000 m2 hótel. Eik hefur líka lagt lið sitt við félagasamtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, með því að lána þeim húsnæði.

Stærð Eikar sem og traustar rætur hafa gert félaginu kleift að tryggja hagstæð lánskjör, sem síðan skilar sér óhjákvæmilega til okkar viðskiptavina í formi hagstæðra kjara. Þar að auki hefur stærðin gert Eik mögulegt að bjóða upp á mjög mikla breidd til sinna viðskiptavina, hvað varðar húsnæði og afnotamöguleika.

Dótturfélög Eikar fasteignafélags eru Ingólfsstræti 1a ehf, Klapparstígur 27 ehf, Skeifan 8 ehf og Suðurlandsbraut 20 ehf.

 
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
EIK fasteignafélag HF // Sóltún 26 // 105 Reykjavík // Kt. 590902-3730 // Sími 590 2200 // Fax 590 2299
Vefhönnun, Hugsa sér!
Eik fasteignafélag, merki
lyklar
Icelandic(IS)English (United Kingdom)