Bæjarlind 2 - efsta hæðin

Félagið hefur opnað nýjan skrifstofukjarna á efstu hæð félagsins að Bæjarlind 2. Mikil eftirspurn hefur verið eftir minni skrifstofurýmum á svæðinu en á hæðinni eru samtals 13 skrifstofur. Allar skrifstofurnar eru með hlutdeild í tveimur fundarherbergjum á sömu hæð og eldhússaðstöðu. Skrifstofurnar eru allar leigðar með húsgögnum og auk þess bíður félagið upp á nettengingu fyrir leigutaka hæðar sem er þá hluti af rekstrarkostnaði. Tvö fundarherbergi eru auk þess fullinnréttuð og þá er sömuleiðis setsvæði á hæðinni. Laust er til leigu skrifstofa sem er 51,3fm að stærð, rými 11 á grunnmynd.

Sjá á korti

Rými í boði

Skrifstofur
Gerð:
Skrifstofuhúsnæði
Stærð:
51,3 m2
  1. Senda fyrirspurn