Eplið hárstofa í Borgartúni

3. júní 2025

Reykjavík skartar mörgum þekktum kennileitum sem hvert um sig setur svip á ásýnd borgarinnar. Borgartún 26, eða B26 eins og byggingin er merkt með áberandi hætti, er eitt þeirra. Í þessari glæsilegu byggingu í hjarta fjármála- og viðskiptahverfis höfuðborgarinnar er augljóslega gott að vera og þar er einmitt hárstofan Eplið. Í húsinu hafa þær Birna Hermannsdóttir og Ragnheiður Björk Hreinsdóttir mundað skærin og sinnt viðskiptavinum sínum af kostgæfni frá því að húsið var tekið í notkun árið 2007.

Birna Hermannsdóttir og Ragnheiður Björk Hreinsdóttir hárgreiðslumeistarar og eigendur hárstofunnar

„Við kynntumst þegar við unnum saman á hárgreiðslustofunni STUHR í Kaupmannahöfn. Eftir heimkomuna unnum við saman í nokkur á Mojo/Monroe niður í miðbæ í framhaldi af því ákváðum að skoða möguleikann á að fara sjálfar í rekstur,“ segir Birna með kaffibolla í hönd þegar sest er niður til að fara yfir sögu fyrirtækisins í B26.

„Við vorum að svipast um eftir húsnæði þegar við ókum hér framhjá og ég segi einfaldlega „En hér?“ og við snérum hreinlega við og fórum inn í þessa nýbyggingu sem verið var að standsetja,“ segir Ragnheiður og rifjar upp hvernig þær stöllur, ásamt eiginmönnum sínum, komust inn í hrátt húsnæðið til að skoða sig um og þar með hófst rekstur Eplisins.

Borgartún 26 samanstendur af tveimur húshlutum, sem eru annars vegar fimm hæðir og hins vegar átta hæðir, sem tengjast með stighúsaturni. Í húsinu er bílageymsla á þremur hæðum, á jarðhæð ýmis fyrirtækjarekstur en skrifstofur á efri hæðum, sem Eik innréttar eftir þörfum hvers leigutaka. Og það er einmitt á jarðhæðinni sem Eplið er niðurkomið og er óhætt að segja að vel hafi tekist til. Stofan er hönnuð af Jóni Guðmundsyni arkitekt og er hin glæsilegasta, hátt til lofts og vítt til veggja, fallegar innréttingarnar grípa augað, hljóðvist með besta móti, mikil birta og stórir gluggar til norðurs gefa stofunni einstakan blæ. Eplið er svo sannarlega einstakt í sinni röð.

„Þetta hverfi var að byggjast upp og við fundum strax að þetta svæði myndi henta okkur vel. Húsnæðið sjálft bauð upp á svo marga möguleika og við sáum að við gátum gert þetta algjörlega að okkar, þar sem þetta var nýbyggt,“ segir Birna.

Þær stöllur höfðu eins og áður sagði starfað í geiranum um árabil og áttu sína föstu viðskiptavini sem fylgdu þeim að sjálfsögðu í Borgartúnið. Við bættist síðan mikil uppbygging íbúðahverfisins í kring, svo ekki sé talað um allan þann fjölda fyrirtækja sem starfandi eru í hverfinu.

Líklega er ekki á neinn hallað þegar sagt er að Eplið sé ein glæsilegasta hárstofa landsins, sem á einmitt vel heima í þessari afar vel heppnuðu byggingu sem býður upp á fallegt útsýni til fjalla og sjávar. Í húsinu er bæði hjóla- og sturtuaðstaða fyrir þá sem vilja nýta sér þann samgöngumáta en fyrir þá sem velja bílinn er gnægð bílastæða að finna fyrir þá sem eiga erindi í húsið, t.d. til þeirra Birnu og Ragnheiðar á Eplinu.

Eplið hefur líka skapað sér sérstöðu með því að þar er í raun einnig að finna myndlistargallerí, þar sem tugir listamanna hafa sýnt verk sín á liðnum árum.

„Við höfum boðið upp á þetta rými til sýninga frá því að við opnuðum. Veggirnir hér eru svo flottir og birtan góð. Rými til sýninga hefur fækkað og okkur fannst tilvalið að bjóða listamönnum að nýta aðstöðuna hér og skapa menningarheim sem allir geta notið,“ segir Ragnheiður. Myndlistarmenn sýna verk sín endurgjaldslaust á Eplinu og fær hver og einn þrjá mánuði fyrir sína sýningu.

Þeim Birnu og Ragnheiði líður vel í Borgartúni 26 og láta vel af samverunni með öðrum leigutökum og samskiptum sínum við félagið.

„Hér hefur allt gengið upp og okkur líður vel í þessu góða húsnæði. Þá má ekki gleyma Jökli húsverði sem er hvers manns hugljúfi og er ávallt reiðubúinn að aðstoða og bjarga því sem bjarga þarf. Öll svona hús þurfa á slíkum mönnum að halda og það breytir miklu fyrir okkur sem leigjendur að hafa jafn lipra og þjónustulundaða starfsmenn sem létta okkur lífið.“