Laust starf hjá Eik
Forstjóri
Við leitum nú að öflugri manneskju með brennandi áhuga og kraft til að leiða áframhaldandi vöxt félagsins inn í framtíðina. Fram undan eru fjölmörg tækifæri þar sem viðskiptaþróun, þjónusta og samvinna við hagaðila eru í lykilhlutverki.
Forstjóri leiðir öflugt starfsfólk félagsins, mótar stefnu í samvinnu við stjórn og ber ábyrgð á rekstri og uppbyggingu Eikar í síbreytilegu rekstrarumhverfi.
Hæfniskröfur:
· Verkefnastjórnun og eftirlit með framkvæmdum
· Víðtæk reynsla af stjórnun og rekstri
· Leiðtogahæfni og stefnumótandi hugsun
· Sölu- og þjónustudrifið hugarfar
· Geta til að byggja upp og viðhalda sterkri liðsheild og starfsánægju
· Glöggt auga og staðföst trú á tækifæri
· Brennandi áhugi á fasteignum og skipulagsmálum
· Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
· Viðeigandi háskólamenntun
Umsóknarfrestur: 02.02.2025
Nánari upplýsingar um starfið veita Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is, og Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is.
Sækja um hér