Suðurlandsbraut 32
Laus til leigu skrifstofa nr. 12 á þriðju hæð í byggingunni, samtals ríflega 30 fm. Einnig losnar fljótlega skrifstofa 11 á sömu hæð sem er tæpir 40 fm og ríflega 18 fm skrifstofa merkt nr. 6 á grunnmynd sömu hæðar. Á fjórðu hæð losnar fljótlega skrifstofa nr. 1, samtals 34 fm og skrifstofa nr. 1 á þriðju hæð, samtals 37 fm. Þá losnaði nýlega rúmlega 180 fm skrifstofurými á fimmtu hæð byggingar sem er merkt nr. 7 á grunnmynd hæðar. Um er að ræða flott skrifstofurými með svölum til norðurs og flottri fjallasýn. Fljótlega losna svo tvær skrifstofur til viðbótar á fjórðu hæð byggingar, skrifstofa merkt nr. 11-12 samtals tæplega 41 fm og skrifstofa nr. 10 samtals ríflega 20 fm. Báðar skrifstofur eru með fallegu útsýni til norðurs að Esjunni.