Lónsbakki
Til sölu eða leigu - Lónsbakki, Hörgársveit.
Svæðið er afar vel staðsett við þjóðveg og bæjarmörk norðan Akureyrar. Um er að ræða tvær byggingar en til boða stendur að taka einnig hluta bygginga á leigu. Lóðin er stór, eða um 20.000 fm og býður upp á ýmsa möguleika. Suðurbyggingin er 2.814,5 fm og er lofthæð hæst 6,1m. Norðurbyggingin er 3.423,9 m2 og er lofthæð hæst 8,1m. Nánari upplýsingar veitir Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunnar sturla@eik.is / 896 2164. Auk þessa er hægt að senda fyrirspurn á utleiga@eik.is
Í byggingunni hefur um langt skeið verið fjölbreyttur verslunarrekstur og má í því samhengi nefna verslun Húsasmiðjunnar og bílasölu.