Stjórnarhættir

Eik fasteignafélag hf. kappkostar að viðhalda góðum stjórnarháttum í samræmi við gildandi leiðbeiningar og reglur. Stjórn félagsins skipa fimm einstaklingar kjörnir af hluthöfum. Daglegur rekstur heyrir undir forstjóra félagsins sem situr í framkvæmdastjórn.

Regluvörður félagsins er Árni Huldar Sveinbjörnsson lögmaður og staðgengill regluvarðar er Ingimar Tómas Ragnarsson.

Endurskoðendur

Endurskoðendur félagsins eru Eyþór Guðjónsson og Signý Magnúsdóttir löggiltir endurskoðendur hjá Deloitte ehf.

Endurskoðunarnefnd

Í endurskoðunarnefnd eru Ragnheiður Harðar Harðardóttir sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Eyjólfur Árni Rafnsson og Gunnar Þór Gíslason. Starfssvið endurskoðunarnefndar nær til Eikar fasteignafélags og félaga innan samstæðu félagsins. Endurskoðunarnefndin skal leitast við að tryggja áreiðanleika ársreikninga og annarra fjármálaupplýsinga ásamt óhæði endurskoðenda.

Starfskjaranefnd

Í starfskjaranefnd eru stjórnarmennirnir Bjarni Kristján Þorvarðarson, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Katrín Jakobsdóttir og Gunnar Þór Gíslason. Starfskjaranefnd undirbýr tillögur að starfskjarastefnu og starfskjörum stjórnarmanna fyrir hluthafafund. Jafnframt undirbýr nefndin samninga um laun og önnur starfskjör við forstjóra og aðra starfsmenn, heyri þeir undir stjórn.

Tilnefningarnefnd

Á aðalfundi 16. apríl 2026 voru kjörin í tilnefningarnefnd félagsins Anton Reynir Hafdísarson, Íris Björk Hreinsdóttir og Sigrún Ragna Ólafsdóttir. Nefndin hefur skipt með sér verkum og mun Sigrún Ragna sinna formennsku í nefndinni á starfsárinu. Hlutverk tilnefningarnefndar er að vera ráðgefandi við kosningu stjórnarmanna og markmið hennar er að skapa hluthöfum forsendur fyrir upplýstri ákvörðunartöku við stjórnarkjör. Hluthafar geta komið sjónarmiðum á framfæri við nefndina, óskað eftir fundi með nefndinni, sent nefndinni tillögur eða ábendingar um mögulega frambjóðendur á netfangið tilnefningarnefnd@eik.is.

Eik fasteignafélag hefur sett sér stefnur um ýmis málefni.