Ármúli 13 - efsta hæðin
Fljótlega losnar til leigu efsta hæðin í byggingunni á þessum vinsæla stað í Múlunum. Fallegt útsýni til allra átta yfir borg, fjöll og til sjávar. Hæðin er tæpir 367 fm og skiptist í opin skrifstofurými og fundarherbergi. Björt og nútímaleg hæð. Í byggingunni er sturtu- og búningsaðstaða og læst geymsla fyrir hjól. Bílakjallari og bílastæði á útiplani eru við bygginguna sem er stýrt með aðgangi.