Skeifan 19
Nýr skrifstofukjarni félagsins hefur nú verið opnaður á 3. hæð að Skeifunni 19, beint á móti Pennanum. Laus til leigu tæplega 30 fm skrifstofa, merkt nr. 2 á grunnmynd. Skrifstofan er með hlutdeild í tveimur fundarherbergjum á sömu hæð og góðri kaffistofu. Skrifstofurnar eru leigðar án húsgagna en fundarherbergin eru fullinnréttuð og þá eru sömuleiðis flott setsvæði þar sem hægt er að hitta fleiri leigutaka hæðarinnar og koma á tengingum og samvinnu sé áhugi fyrir slíku.